Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
drullusokkar@drullusokkar.is
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
drullusokkar@drullusokkar.is
27.01.2012 21:24
Harley Cafe Racer
Fyrirtækið Storz Performace hefur hannað nýja cafe racer línu á Harley Davidson Sportser 2004-12. Þeir settu saman sýningarhjól til að kynna aukahlutina sem eru í boði frá þeim á sportserinn. Álbensíntankur og fiberglass road race afturhluti. Clip on stýri frá Driven, Storz framdemparar, tveir stillanlegir öhlins demparar að aftan. Storz notaði 2007 883 Sportser sem þeir boruðu út í 1200cc og fengu stimpla frá Wiseco. BUB/Storz tveir í tvo pústkerfi. Hjólið er á 18" felgum að framan og aftan. Þessir aukahlutir ásamt mörgum fleirum á Storz Performance síðunni.

Skrifað af Sæþór
26.01.2012 20:10
Hvar er Doctorinn okkar?
Lítið hefur spurst til Dr Bjössa undanfarna mánuði og svo mikið verið að gera hjá kalli að menn eru farnir að spyrjast fyrir um Bjössa ekki veit ég hvað hann er að bardússa þessa mánuðina en grunur minn reyndist á rökum reystur eftir að ég fékk njósnara til að gá hvort hann hafi sést eitthvað undanfarna mánuði, Einn velunari síðunar vildi meina að Björn væri lagstur í vetrardvala líkt og bræður sínir á Grænlandi. En svo er aldeilis ekki kallinn er búinn að vera að þefa uppi gamlar Rígur og aðrar petalagræjur til að kjammsa á meðan hann er í híðinu, og viti menn hann fann draumahjólið sitt og hjólar á því HRING eftir HRING meira að segja á svefherbergisgólfinu sínu þegar ófært er úti sökum ófærðar, þetta sleppur segir konan en verst er pústlygtin þegar hann er búinn að djöflast um á græjuni í 20 mínútur eða svo þá er bara ólíft hér inni segir sú gamla enda orðin þreytt á þessu brölti Doctorsins. Heimildarmaður Drullusokka náði myndum af kappanum á nýja draumahjólinu sínu og sendi okkur.

Það fylgdi söguni að Dr Bjössi sé hér á leið til Sandgerðis að líta eftir forláta Opel Reckord árg 1958 sem hann er búinn að eiga þar í ein 5 ár þetta er bölvað bras að þurfa að fara daglega til Sandgerðis og moka Pellann upp enda ófært að láta hann snjóa niður. Sagan segir að Björn hafi sogið ( þennan forláta bíl sem reyndar er einn sinnar tegundar í landinu) út úr Ugluspeglinum Raymond Doglas Davis en sá er enn í sárum eftir hið mikla og kröftuga sog Doctorsins sem náði líka að sjúga út tvo Páfagauka hálf hárlausa að vísu. Og það allt fyrir eitt stykki NSU skellitík.

Hann tekur sig vel út á tækinu það má hann eiga kallinn.

Þarna er Bjössi upptekin að horfa á hraðarmælinn hvað kemst það nú hratt ?

Já það er gaman að taka hring á svona flottri græju sem virkar vel.
Skrifað af Tryggvi
24.01.2012 21:29
Danmörk 1970
Kristján félagi 115 sendi okkur myndir af sér á Honda CB250 sem teknar voru í ferðalagi um Danmörku árið 1970.

Við þökkum fyrir flottar myndir

Við þökkum fyrir flottar myndir
Skrifað af Sæþór
24.01.2012 21:06
Kominn tími á einn alvöru.........1000
Okkur barst póstur frá ónefndum félaga í klúbbnum, þar sem hann var búinn að fá sig fullsaddann af umræðum um 1000cc hjól hér á síðunni, hann tjáði óánægju sína með einni einfaldri setningu og mynd.................
Kominn tími á einn alvöru 1000.......

Hann er glæsilegur Kawinn, z1000 1978
Kominn tími á einn alvöru 1000.......

Hann er glæsilegur Kawinn, z1000 1978
Skrifað af Sæþór
23.01.2012 20:26
Victory Judge
Victory var að gefa út súpercool kynningarmyndband um nýja Judge-hjólið,
"American muscle never died, it just needed handelbars"
Kaninn klikkar ekki á því.
"American muscle never died, it just needed handelbars"
Kaninn klikkar ekki á því.
Skrifað af Sæþór
22.01.2012 16:01
Husqvarna concept
Husqvarna kynnti nú um helgina concept útgáfu af baja hjóli á mótorhjólasýningu í NewYork. Hjólið er svona all season græja með 70s lúkki.
Hjólið er 650cc, eins cylenders, vatskælt með beinni innspýtingu, Brembo bremsum 17" afturdekki og 19" framdekki. Mótorinn kemur frá BMW, en BMW á einmitt Husqvarna.

Framljósið er LED og hrikalega töff.

Hér er The king of cool, Steve McQueen á Husqvarna 400 1971 sem svipar til nýja concept hjólsins.

22.01.2012 00:10
Kawinn hans Dadda
Daddi er búinn með allt vetrarprógramið sitt, og hjólið er komið saman hjá karlinum.
Hjólið lítur virkilega vel út hjá honum.
Hann tók felgurnar undan og lét sprauta þær, setti nýjar strípur á þær, lét mála frambrettið, tók hvarfakútinn undan, setti nýjan tank pad, handföngin á stýrið,monster lopapeysu utan um bremsubiðuna fyrir frambremsuna, svo fékk Daddi sér kawasaki græna keðju og slatta af monster límmiðum, eins og ég sagði áðan er hjólið virkilega flott hjá Dadda. Þá er bara að bíða eftir sumrinu.
Myndir

Hér eru félagarnir Daddi og Kawinn.

Handföngin og lopapeysan.

Ekki má gleyma keðjunni.

21.01.2012 08:53
Flottur Norton 850 cc
Það eru líka til flottir Nortonar hér er einn fyrir Bigga Jóns Gylla Úr og Óla Bruna og hina örfáu Norton menn Íslands

Hér eru myndir af Norton Comando Roadster árg 1974

Segiði svo að Bretarnir fái ekki líka pláss á síðuni enda erum við jú allir Drullusokkar. En Þessi Norton er glerflottur
Skrifað af Tryggvi
20.01.2012 10:59
Kaninn er flottastur.
Hér að neðan eru nokkrar útfærslur af 750 Hondum eftir að Kanarnir eru búnir að fara um þær höndum.

Þetta er ein dellan sem er í tísku núna í USA breita þeim í Bobbera.

Og Chopperinn er alltaf jafn vinsæll hjá Ameríkananum.

Þessi hefur nú verið að herma eftir Óla bruna, en flott púst.

Hér er einn með Race fílinginn á tæru.

Og annar líka.

Þessi myndi leggjast út sem Café racer

Þessi Cafe Racer er kanski líkari Ólahjóli bara með betri mótor.

Svona hluti vorum við nú að gera hér í Eyjum í kringum 1975- 1980

Þessi 750 Honda gæti nú hentað mér vel í spyrnuni gegn Nortoninum hans Bigga Jóns enda segir hann að nú megi ég passa mig svo öflugur er Nortonin í dag.

Hér er ein blá eins og mín

Kaninn kann sko að græja græjurnar það má hann eiga.

Hér er ein vel speisuð.

Þeir ýmist hækka þær upp eða lækka niður í götu.

En hvað um það þá finnst mér þær bestar svona orginal enda orðin orginal dellu kall með árunum og eftir að þessar elskur urðu þrítugar og heilla samt enn gamla kalla upp úr skónum.

Hér er svo frumútgáfan sem kom árið 1969. Eru þær bara ekki flottastar þegar ekki er búið að fikta neitt í þeim?
Skrifað af Tryggvi
19.01.2012 20:38
Kawasaki Lögguhjól fyrir Dadda.

Daddi bað um Kawasaki lögguhjól svona til að þetta væru nú ekki bara einhverjar Hondu tíkur svo hér fær hann það sem hann vill og það beint í æð, en þarna er að vísu einhver vittleysingur búin að stela því (Hver stelur nú Kawa og það Lögguhjóli ?)

Hér er svo það síðasta sem við höfum séð af Kawasaki lögguhjóli Daddi minn.
Skrifað af Tryggvi
19.01.2012 12:05
Þá er það CB 750 pólís spesial
Honda framleiddi einig cb 750 fyrir löggumarkaðinn

Hér er 1969 árgerðin af SOHC num sem úlistast sem single over head camshaft

Töff Tugti eins og Tótu Steini myndi segja

Það var aðalega löggan í Tókió sem notaði þessar Hondur á sínum tíma enda virkuðu græjurnar vel
Skrifað af Tryggvi
18.01.2012 07:23
BlackBomber lögguhjól

Honda CB450 1965 police special
Honda framleiddi 25 svona hjól fyrir ameríkumarkað á sínum tíma.
Hjólið er 43hö. það er útbúið með nákvæmari hraðamæli en standart útgáfan, tvö lögguljós, bögglabera fyrir talstöð og sjúkrakassa, og hávær sírena sem er tengd með barka í afturhjólið, og sett í gang með handfangi á stýrinu.
Hjólið sem er á myndunum er til á Bob Louge motorsports Honda safninu í Bandaríkjunum.

17.01.2012 09:03
(G)old-wing
Það er misjafnt hvað menn gera við hjólin sín og hvað mönnum finnst flott.
Mér var hugsað til Tryggva þegar að ég sá þessar tvær útfærslur af gömlum Honda Gold-wing.Kannski að Tryggvi breyti sínum e-ð í áttina að þessum tveimur !

Þetta er 1983 1100 GoldWing.
Eigandinn heitir Kevin Rowland og hann breytti hjólinu sjálfur. Tankurinn er af CB750, blöndungarnir úr gömlum Volkswagen, framdempararnir af Suzuki GSX-R og mixaður mono-afturdempari, bremsu- og kúpplingsbrakketin eru af CBR Hondu, og búið að græja vökvakúpplingu.

1975 1000 Gold Wing
Eigandinn er Paul Dutra, tankurinn er af KZ550, svo var bara allt sem mátti fara af hjólinu rifið af, hjólið lækkað, stellið sagað, beigt og soðið að aftan, eftir að gaurinn græjaði Gold Winginn svona fór hann á honum frá Canada til L.A. og til baka , ca. 5000mílur á 9 dögum, með þessu fína sæti.
Tekið af www.bikeexif.com

16.01.2012 08:13
MotoGuzzi V8
Moto Guzzi hannaði og framleiddi 8 cylendra kappaksturshjól á miðjum fimmta áratug síðustu aldar. Hjólið var gríðarlegt tækniundur á sínum tíma þrátt fyrir að hafa aðeins unnið þrjá sigra á þeim árum sem það var notað í keppnir.
Árið 1955 náði hjólið 275 kmh/klst á Spa brautinni.
Hjólið er 148 kg. í þurrvigt og skilar 78 hestöflum, 499cc vatskælt og 8.cyl. Mótorinn er virkilega nettur og tekur ótrúlega lítið pláss.
Fyrsta hjólið var framleitt 1954 og hóf keppni árið eftir, aðeins 5 svona hjól voru framleidd, og hjólið sem myndirnar eru af er 1957 árgerðin,síðasta árið sem Moto Guzzi notaði hjólið, en mótorinn í því hjóli var töluvert endurbættur frá fyrstu útgáfu. Moto Guzzi áttu samt alltaf í vandræðum með áræðanleika hjólsins.

Hjólið hefur kannski ekki útlitið með sér, en tækniundur síns tíma.

15.01.2012 12:56
Meira trial
Toni Bou er fæddur 17.okt. 1986 á Spáni, þrátt fyrir að vera ekki eldri en það er hann 10.faldur heimsmeistari í trial akstri.Hann hefur bæði unnið FIM innan- og utan-dyra titlana 2007-2011 samtals 10 titlar. Hann keppti sína fyrstu keppni 1999 þá á þrettánda aldursári sínu. Hann hefur unnið næstflesta heimsmeistaratitla í trial akstri en aðeins Dougie Lampkin hefur unnið fleiri eða 12.
Toni hefur ekið á Repsol Montesa HRC hjóli síðan 2007.

Og eitt töff video í restina fyrir þá sem vilja.
Toni hefur ekið á Repsol Montesa HRC hjóli síðan 2007.

Og eitt töff video í restina fyrir þá sem vilja.
Skrifað af Sæþór
Eldra efni
- 2012
- Janúar (27)
- 2011
- Desember (28)
- Nóvember (34)
- Október (32)
- September (34)
- Ágúst (26)
- Júlí (19)
- Júní (20)
- Maí (42)
- Apríl (63)
- Mars (26)
- Febrúar (12)
- Janúar (12)
- 2010
- Desember (14)
- Nóvember (15)
- Október (2)
- September (4)
- Ágúst (6)
- Maí (8)
- Apríl (2)
- Mars (4)
- Febrúar (5)
- Janúar (7)
- 2009
- Desember (1)
- Nóvember (1)
- Október (5)
- September (2)
- Ágúst (5)
- Júlí (5)
- Júní (1)
- Maí (4)
- Apríl (4)
- Mars (11)
- Janúar (7)
- 2008