M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

27.05.2013 09:58

Okkur barst bréf frá Steina Árna, spurning hvort að menn taki ekki vel í þetta, aðeins að rúnta með þá og taka skúraspjall, það klikkar seint.
Endilega koma með athugasemdir hér að neðan.

Heilir og sælir " Sokkar" !

Við erum nokkrir mótorhjólakallar hjá Orkuveitu Reykjavíkur í klúbb sem heitir " MótOR".  

Nú hefur stefnan verið sett á Eyjar , laugardaginn 8. Júní, og spurning hvort einhverjir félagar úr Drullusokkum mundu vilja taka á móti  borgarbúunum og hjóla með okkur um Eyjuna fögru og sýna okkur hversu vel þið búið félagslega.

Ég veit ekki endanlega tölu á ofurhugunum sem gæti verið 8- 10 manns ( Vonandi fleiri) eins á ég eftir að fá endanlega tímasetningu. Var reyndar búinn að heyra að pöntuð hafi verið RIB safari sigling, en ég mun fá endanlegar tímasetningar, helst í fyrramálið.

 Skrifað á næturvaktinni með bestu kveðjum:  Steini Árna, Drullusokkur # 170

Þorsteinn Árnason

25.05.2013 11:03

Gamall Topp þverhaus á Selfossi.




Hér sjáum við nýjasta meðliminn í vélhjólafélagi Þverhausa Hilmar Lúthers þverhaus. Himar kærði sig inn í félagið á þeirri forsendu að hann væri búinn að vera algjör Þverhaus í bráðum 75 ár og geri aðrir betur sagði sá gamli með bros á vör. Stjórn Þverhausa úthlutaði Himari félagsnúmmerið # 2 enda toppþverhaus þarna á ferð.



Hér er Óli Bruni að veita þeim gamla merki og bol til staðfestingar inntökuni. Síðan sagði Óli er ekki gott að vera kominn út úr þverhausaskápnum eftir öll þessi ár Hilmar minn ? Jú hú hú sagði sá gamli  með enn stærra glott á vör.



Hér er svo Sigurjón Andersen yfirgaflari með meiru að knúsast í gamla enda undirbúningur í gangi að sjúga kallinn un dót í Kawasaki. Sigurjón og Óli míktu gamla með því að segja við erum allir Þverhausar í félaginu nema þú gamli. " Þú ert Topp Þverhaus " Svo til aðgreiningar á okkur hinum þverhausum þá vitum við hver er Toppurinn.

22.05.2013 08:48

Honda 400 Four.




Sá þessa fjögura cylindra 400 cc Hondu á fyrsta maí síðastliðin flott græja af minni gerðini



Hjólið er alveg orginal meira að seja pústið en líklegast er það af árg 1976. Það var ein svona 400 Honda hér í Eyjum á sínum tíma en þetta er ekki hún.

20.05.2013 10:33

Doctorinn farinn að þamba Tvígengisolíu




Þessi mynd náðist af Dr Bjössa þegar hann var að versla sér bús fyrir Hvítasunnuhelgina, en hann er hættur öllu bjór og rauðvíns þambi eftir að hann komst á bragðið með tútakt oliuna. Hann sagði að Súkkan hafi haft svo gott af þessu að hann ákvað að prufa líka og viti menn það bara rennur niður af mér eftir að ég smurði belginn að innan og nú er hann á fullu við að reyna að draga 2 fermingarbræður sína í þetta líka og vill mínka magamál þeirra eins og hann hefur sínt svo sannarlega að er hægt enda rennur kallinn ógurlega og líka á sætinu á 550 Súkkuni sinni.

19.05.2013 15:26

Millilandavélin hans Steina Tótu


Þótt þetta sé nú aðalega síða ætluð er fyrir motorhjóladelluna þá stendst ég ekki freistinguna þegar Steini Tótu gerðist alvöru flugstjóri á millilandavél sinni og flaug yfir með Árna nokkurn Johnsen.



Eins og vel má sjá á þessari þá er þetta nú ekki 747 Júmbó þota en flugvél samt.



Hér er farþeginn Árni Johnsen um borð og tók Tótumann ekki annað í mál  en að Árni sæti á fyrsta farrými eða Saga Klass en þar er boðið upp á munað sem öðrum farþegum stendur ekki alla jafna til boða.



Svo er að komast út úr græjuni sem er annað mál.



En allt hefst þetta og þarna gengur Árni frá þotuni.



Hér eru þeir svo saman flugstjórinn Tótu Steini og farþeginn Árni ásamt hluta af Cargóinu sem flutt var einig með í sömu ferð. Já þeir eru öflugir þessir tveir og báðir uppátæjasamir menn með einæmum.

17.05.2013 19:12

Honduheimar að verða klárir.


Nú fer að styttast í að Honduheimar það er dótakassinn minn verði tilbúinn en þarna er oft margt um manninn enda staðurinn í alfaraleið. Þarna er mikið spáð og spekúlerað einnig spjallað og drukkið kaffi (En þá bara kaffi ) og ekki má gleyma bullinu sem kemur út úr Jenna rauða sem léttir barasta lundina en Darri var eitthvað að tala um að Jenni væri skúffaður með stefniljósin á 500 Honduni sinni og saug út nýja stauta út úr Darra sem þó var búinn að lofa mér þeim svo maður er bara skúffaður líka. En nóg af masi, tók þessar myndir í dag.



Þessi gæti heitið Honda Four Ever.



Og þessi líka.



Það dugar ekkert minna undir þessar elskur annað en parket enda leka þær ekki dropa.





Verðum við ekki að hafa einn mótor með svona til að minna á að hann er öflugri en Norton.



Hér er eitt af plakötunum sem príða veggina en þeim á eftir að fjölga Það er að segja myndunum. En þarna er Hondu sagan öll í stórum dráttum allt  til ársins 1976.



Hér er gamli ásamt gestum sem voru á staðnum þegar myndatakan fór fram.

15.05.2013 21:18

Fyrsta míla ársins


Fyrsta umferð í íslandsmótinu í kvartmílu verður haldin á Laugardaginn 18.maí ef veður leyfir.

Spurning að fara að klára þessar túrbínupælingar eins og eigandi þessa hjóls hefur klárlega gert....

14.05.2013 21:24

Grams


Einar á 1400 Kawanum

Þessi er tekin í dalnum, sennilega 2006 eða 2007.

Frá aðalfundsdegi 2011.

13.05.2013 20:54

Torfæran

Hér er video sem er tekið úr torfærugrindinni hjá Magga Sig. Maggi ásamt nokkrum góðum félugum er búinn að smíða þessa grind frá grunni, hann fer ekki hefðbundna leið í smíðinni því að hann notar vél úr Honda Accord. 4.cyl 2.4 en með túrbínu (sudda power í tíkinni). Hann keppti í fyrsta sinn á grindinni nú um helgina hér í Eyjum og stóð sig bara alveg hreint ágætlega. Braut reyndar tvö afturdrif og missti af einni braut vegna viðgerða og tók svo síðustu brautina í framdrifinu. Það tekur tíma að slípa svona smíði til en ljómandi góð byrjun. Maggi og hans lið eiga hrós skilið fyrir þessa smíði. Baldur Gíslason ( einn af heilunum á bakvið grindina ) klippti videoið saman.

Hendi þessu hér inn þó svo að þetta sé ekki mótorhjólatengt, töff videó.


13.05.2013 19:08

Þverhausinn Gosi Dolla.


Hér að neðan eru myndir af manninum sem var hugmyndin á bak við nafnið á mótorhjólaklúbbnum Þverhausum en þessi þverhaus er ekki búinn bakkgír og getur þar að leiðandi engan veginn bakkað neitt. Hugmyndin af komu hans hingað til eyja var að semja um greiðslu og ummálsmælingu til að láta stoppa sig upp og verður kallinn þannig mun verðmætari en síðasti Geirfuglinn. Með í för hafði kallinn svo forláta bifhjól sem hann verslaði alfarið upp á eigin spítur enda þverhaus mikill sem engan veginn getur tekið leiðsögn. Hann skyldi svo gripinn eftir hér og líg ég því ekki að meiri hluti eyjaskeggja er í þvílíkri bensínvímu að fólk bara dettur út þegar það labbar strandveginn og aðrir með Sólheimabros á vör. Engu skiptir þótt bensíntankurinn hafi verið grafinn í jörðu karbratórarnir settir í bleikjubað í kari þá ekst bara bensínfnykurinn og heyrði ég að fílan af gripnum sé um þessar mundir að berast í Landeyjar.



Heyrði eftir ónefndum Doctor í Hafnarfirði að gripurinn hafi verið verslaður af hjólkopparæningja í miðríkjum Bandaríkjana og hafi koppaþjófurinn sest í helgan stein eftir að búið var að ganga frá söluni.



Hér er eigandinn með glott á vör og leikur sterkur grunur á að hann viti vel af komandi vímu okkar saklausu eyjaskeggja



Hér er svo gamli sestur á bak og sagði hann mér að svertingi í krakkvímu hafi sprautað röndina hérna meginn fyrir einn skammt.



Enfremur fylgdi söguni að negrinn hafi verið allsgáður þegar hann sprautaði röndina hérna megin. En eftir að kvikindið sprautaði sjálfan sig þá fór allt úr böndum. En svona án alls gríns þá er nú mest um vert að hann Gummi sé ánægður enda átti hann eina svona CB 750 árin 1972 og 1973.

12.05.2013 15:30

Stoner

10.05.2013 19:57

Eitt í viðbót frá Mön.

Hér er eitt TT videó í viðbót. Það sýnir vel hraðan og umhverfið og þar af leiðandi sjáum við að aðeins stáltaugamenn geta keppt þarna, engar sandgrifjur eða crash svæði.

08.05.2013 22:08

Vinsamleg ábending.




Við mig hafði samband maður í dag varðandi mótorhjólin hér suður á eyju. Hann bað mig að koma því á framfæri varðandi hestafólk og börn á hestum. Þetta voru engin leiðindi enda verið gott á milli allra í sportinu hér mér vitanlega. Nú í vor hefur töluvert borið á að strákar hafi verið að snúa svolítið vel upp á rörið sem er kanski skiljanlegt en í guðana bænum sláið af ef þið sjáið fólk á hestum með veginum, hestarnir fælast við hávaðan og getur hreinlega orðið slys ef ekki er farið með gát í námunda þeirra. Þarna er fullt af óvönu hestafólki og börnum á hestum þetta er í sjálfu sér ekkert mál bara að slá af ef þið verðið vör við fólk á hestum. Viðmælandi tók sérstaklega fram að þetta hafi ekki verið vandamál hingað til og vonandi að svo verði bara áfram. Nú eru menn farnir að taka út hjólin sín enda búið að vera kalt fram að þessu. Að endingu vonum við að sumarið verði okkur öllum gott og án óhappa, muna svo fundinn á fimtudagskvöldið 9 maí en það hafa verið haldnir fundir í Gullborgarkró hjá okkur drullusokkum öll fimtudagskvöld í vetur og vonandi verður svo áfram.

Fyrir hönd stjórnar Drullusokka.
Tryggvi


Flettingar í dag: 934
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 819
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 838120
Samtals gestir: 58754
Tölur uppfærðar: 2.5.2024 23:28:19