M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

26.08.2009 19:29

Síðasti séns

Jæja Drullusokkar, hvernig væri að drullusokkast til að skrá sig á aðalfundinn þ.e.a.s. í matinn svo við getum áætlað hve mikið af aðföngum þarf að panta. Síðasti séns til að skrá sig er á mánudaginn 31. ágúst kl. 00.00. Þeir sem ekki skrá sig fyrir þann tíma verða að éta það sem úti frís, en þeirra vegna verðum við að vonast eftir næturfrosti sem fyrst eftir fundinn.


Skráið ykkur hér að neðan í bloggið, á gestabókinni eða til Tryggva í síma 896-3429 eða Vigga í síma 895-4006.

Nú þegar hafa um 30 manns skráð sig og þökkum við þeim skjót og góð viðbrögð


E.S. Það skal tekið fram að maturinn er ókeypis fyrir félagsmenn (sem hafa borgað árgjaldið) en aðrir borga 3000 krónur. Öl verður selt á staðnum (í Frá krónni) gegn vægu verði.

Kveðja, stjórnin
Flettingar í dag: 1023
Gestir í dag: 214
Flettingar í gær: 1804
Gestir í gær: 293
Samtals flettingar: 859244
Samtals gestir: 62076
Tölur uppfærðar: 14.5.2024 11:14:44